Kúrbíturinn

 

Kúrbíturinn er vingjarnlegt grænmeti sem nýtur hverrar einustu mínútu, hvern einasta dag. Þrátt fyrir það finnst honum gott að hlakka til nánustu framtíðar. Sálarlíf hans einkennist af glansandi gólfum með fáeinum illa reyttum beðum, fullum af illgresi. Hér og þar, hingað og þangað.

 

Kúrbítnum finnst stórkostlegt að þekkja hæfileikafólk. Fólk sem gefur af sér, bæði í anda og efni. Honum finnst ekkert betra en að gleðjast yfir velgengni annarra. Það er alltaf gott þegar góðir hlutir eiga sér stað. Stórkostlegt. Gleðitilfinningin er sífellt sterkari eftir því sem fólkið stendur honum nær.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Kjartan Sturluson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband